miðvikudagur, 23. september 2009

Nýtt rúm!!!

Jæja, langt frá síðasta bloggi og margt búið að gerast. Elvar er semsagt að sofa í nýja rúminu sínu (sem hann fékk sem fyrirfram afmælisgjöf frá Ingu ömmu) í fyrsta sinn í kvöld... héðan í frá býst ég við því að vera vakinn á hverjum morgni klukkann hálf sjö með lítinn dreng ofaná mér að hossast og öskra VAKNA PABBI MAMMA... mjög jákvætt!!!

Elvar er að standa sig svo vel sem stóri bróðir, heldur í hendina á Daníel, leggst með honum og er jafnvel farinn að biðja mömmu sína um að koma og taka myndir af þeim. Elvar er svo ánægður í leikskólanum, hlakkar til að fara á morgnana og er búinn að þroskast ótrúlega mikið. Nánast fullorðins setningar að koma út úr þessum strák.

Daníel er ofsalega duglegur að gera 2 hluti, drekka og sofa... Stækkar semsagt mjög ört. Virðist hægt og rólega vera að gera sér grein fyrir útlimum, og er meira að segja byrjaður að hlæja og grípa dót. Æðislegur strákur sem meira að segja líkist pabba sínum... ennþá...

miðvikudagur, 8. júlí 2009

Velkominn í heiminn Daníel Óðinn :D

Sunnudaginn 5 Júlí var hringt í okkur frá fæðingadeildinni og okkur tilkynnt að við mættum koma uppeftir í gangsetningu þar sem meðgangan var orðin tæpar 42 vikur burðardýrinu til lítillar gleði :)
Við hringdum strax í ömmu Ingu og hún kom til að vera með Elvari á meðan við foreldrarnir færum að fjölga skattborgurum.

Við komum uppeftir klukkan 16, á sama tíma og Guðrún ljósmóðir kom á vakt og byrjaði hún á því að sprengja belginn. Svo vorum við leidd inn á fæðingargang og hún bauð okkur að koma okkur vel fyrir því héðan myndum við víst ekki fara fyrr en barn væri komið í heiminn :)
Þarna sátum við í rólegheitum á meðan samdrættirnir jukust hægt og rólega en þó án verkja. upp úr hálf6 fóru að koma verkir með og ég skellti mér í baðið. Þetta virtist vera byrjunin á yndislegri fæðingu í alla staði, ég átti auðvelt með að anda mig í gegnum verkina og á milli hríða leið mér bara æðislega vel. Útvíkkunin var búin um hálfátta og stuttu seinna fann ég að baðið hentaði mér ekki til að eiga í svo ég prílaði upp úr og kom mér fyrir í rúminu með Bjarka mér við hlið.
En þá kom babb í bátinn, grindin á mér virðist vera einhverskonar völunarhús og börnin mín einstaklega áttavillt því eins og Elvar þá rataði litli kútur ekki niður, sat fastur skakkur og horfði upp í stað þess að horfa niður eins á að vera.
Eftir að hafa reynt við rembinginn í u.þ.b 2og1/2 tíma án þess svo mikið sem að ná að ýta við barninu kom upp gamla góða vandamálið þar sem verkurinn í mjöðminni og bakinu var búinn að yfirgnæfa fæðinguna og ég náði engan vegin að einbeita mér að hríðinni og oftar en ekki fattaði ekki að rembingurinn væri kominn fyrr en hriðin var hálfnuð og náði því ekkert að rembast...
Þá ákvað fæðingalæknirinn að taka í taumana og mér var skellt upp, Bjarka skipað að halda mér kjurri og ekki fyrr en læknirinn sagði við mig að ég mætti ekki hreyfa mig um millimetra ákvað Bjarki að spurja hvað væri verið að gera og þá loksins upplýsir hann okkur um það að hann sé að fara að setja upp mænudeyfingu! HA??? Og ég sem ætlaði að gera þetta verkjalyfjalaust eins og með Elvar!
Þar með var fæðingunni smellt á pásu og ég mátti ekki rembast með hríðunum í um 3 korter heldur bara hvíla mjöðmina.
Eftir þennan tíma var ég orðin nægilega full af orku til að fara að reyna aftur því fæðingalæknirinn kom þá inn og tilkynnti mér það að ef ekki næðist að ýta honum eitthvað neðar þá væri það eina í stöðunni að smella mér í bráðakeisara!
Argh! ég ætlaði sko EKKI í keisara!
Þarna tvíelfdumst við eiginlega bæði (því þarna var Bjarki farinn að rembast eflaust álíka mikið og ég) og áfram hélt fjörið.
Um 11 leitið opnaðist hurðin á fæðingastofunni og skurðaborðinu var rúllað inn ásamt einhverjum tólum og tækjum en í því urraði ljósan okkar á þau að hundskast út og loka á eftir sér því loksins LOKSINS hafði drengurinn eitthvað hreyfst neðar.
Svo snéri hún sér að mér og sagði "Jæja Tinna mín nú verðuru eiginlega að gera þetta því ég var búin að kalla út skurðarteimið en var að senda þau út" :D
Þarna fór ég í stríðsham og kl 23:17 leit ég illilega á Bjarka og spurði hvað klukkan væri því 23:18 fæddist litli risinn okkar og honum var bókstaflega fleygt á magann á mömmu sinni sem hefur aldrei verið jafn ánægð :D
Hann var 17 merkur, 55cm langur og með 38cm höfuð ummál :)

Planið var að ná þessari dagsetningu og að missa ekki elsku Guðrúnu okkar sem bjargaði okkur í gegnum þessa fæðingu og viti menn, hann fæddist þann 05.07.09 - 12 mínútum fyrir vaktalok Guðrúnar :D

Fyrsta nóttin var ægilega þægileg, við fengum að færa okkur á hreiðrið og Daníel svaf meirihlutann með nokkurm stuttum pásum.
Við fórum heim seinnipartinn og þökk sé ömmu Ingu fengum við að kynnast litla kappanum okkar í rólegheitunum því Elvar (sér til mikillar gleði) fékk að sofa aðra nótt hjá ömmu.

Svo sóttum við hann í gær hjá dagmömmu og kynntum þá bræður formlega í fyrsta sinn. Það gekk ekkert smá vel, Elvar varð smá sposkur á svip þegar hann sá hann fyrst en benti svo "badnið" og gerði aaaah við hann. Í dag þegar þeir feðgar komu heim frá dagmömmu byrjaði Daníel eitthvað að væla og eins og píla var Elvar mættur við vögguna, strauk honum á kinninni og gaf honum herramanna bókina sína :D

Þetta byrjar allavega æðislega, Daníel sefur og drekkur á við 5 börn og Elvar sýnir engin merki um afbrýðissemi...ennþá ;)
Við verðum eins dugleg og við getum að skella inn myndum næstu daga og vikur en annars eru bara allir velkomnir í heimsókn :)

föstudagur, 6. mars 2009

Öskudagur og fleira

Þökk sé ömmu og afa í Boston þá gat Elvar tekið fullan þátt í öskudeginum í ár þrátt fyrir ungan aldur :D Við foreldrarnir ákváðum að bíða með að fara til dagmömmu og röltum þess í stað niður í bæ til að sýna okkur og sjá aðra :)
Þrátt fyrir að Elvari hafi fundist ótrúlega spennandi að sjá öll þessi skrímsli, prinsessur og tölvukubba hlaupandi um miðbæinn syngjandi Gamla Nóa þá var það lítið miðað við athyglina sem hann fékk útá sætasta þvottabjarnarbúning allra tíma! Það var mjög mikið um aaaah og oooooh þegar við örkuðum upp Bankastrætið í nístingskulda og roki til að skoða mannlífið, sú ganga var þó heldur styttri en við hefðum viljað því við þorðum ekki að treysta þvottabjarnarbúningnum í þessu norðurpóls veðri og hlupum aftur inn í bíl og beinustu leið til Önnu Lísu dagmömmu. Þar hélt krúttbræðslan áfram því Anna Lísa féll alveg fyrir honum og börnin hlóu og skríktu yfir skottinu á þessum furðulega kuldagalla :)
Sem sagt, skemmtilegur fyrsti öskudagur hjá okkur :)

Það er alveg ótrúlega gaman að fylgjast með stráknum þessa dagana því hann svoleiðis rýkur áfram í þroska og stökkin sem hann tekur (að sjálfsdáðum finnst manni stundum) eru ótrúleg. Sem dæmi má nefna að frá því hann var tæplega ársgamall hefur eini líkamsparturinn sem vakið hefur athygli hjá Elvari (nefnt á nafn og bent) er Typpið! Við hvert tækifæri orgar hann dypp og vöðlar svolítið í typpaling í leiðinni :) þetta fannst okkur foreldrunum ekki alveg nógu sniðugt svo við ákváðum að reyna að byrja að kenna honum nef, eyru, hendi, puttar, tær ofl en án árangurs. Ef við spurðum "hvar er nefið" þá greip hann fastataki um miðsvæðið á sér og gargaði "dypp!!!" :)
Núna hins vegar bara á síðastliðnum vikum er hann orðinn betri en læknanemi á fjórða ári að nefna alla líkamsparta sem hann finnur :) Ekki er heldur nóg að tala um eyjað á sjálfum sér heldur þarf hann þá líka að benda á öll eyru í færi (dúkkan, bangsinn, mamma, pabbi, kisa ofl) með misgóðum undirtektum...þá helst frá dýrum heimilisins sem enda sem fórnarlömb gríðarlegs áhuga hans á að læra :)

Hann heldur líka áfram að vera heimilishjálpin og má ekki sjá ryksugu, moppu eða tusku þá kallar hann og æjar þar til hann fær það í hendurnar og fer að þrífa :) Það sama má segja um uppþvottavélina sem fær aldrei að vera í friði - hún skal TÆMD og hafa tveir diskar fengið að fljúga í gólfið því mamman var ekki nógu fljót að grípa þá og ganga frá upp í skáp. Það nýjasta er þvottavélin og bíðum við spennt eftir því að hann fari að hafa vit á að borða ekki þvottaefnið því þá verða ósköp fá heimilisverk eftir sem við foreldrarnir þurfum aðhafa áhyggjur af :)

Jæja nóg komið af fréttum af ofurbarninu okkar og eins og venjulega lofar maður fleiri póstum á næstunni ;)

föstudagur, 6. febrúar 2009

Its a boy!!!

Já Elvar litli/stóri eignast lítinn bróður í júní :D Það verður stuð á þessum bæ, sérstaklega hjá mömmunni sem mun eiga full í fangi með testósterón súpuna á þessu heimili :)

laugardagur, 10. janúar 2009

Já alltaf gleymir maður að skrifa

Annars er hver stórfréttin á fætur annari, Elvar verður stóri bróðir í júní og hlakkar okkur öllum ekkert smá til. Verður spennandi að vita 30 jan hvort hann eignist litla systur eða lítinn bróður?

Svo flýgur hann alveg áfram í orðaforða og oftar en ekki kemur það foreldrunum á óvart hvað hann kann að segja :)
Verst að maður man ekki helminginn til að skrifa niður :)

miðvikudagur, 3. desember 2008

Stærðarinnar fréttir

Já hann elvar ákvað á 13 mán "afmælisdaginn" sinn að rölta yfir stofuna einn síns liðs :D Hann er sem sagt farinn að labba!!! Reyndar er hann alltaf jafn varkár og treystir sér til dæmis ekki enn að labba hjá dagmömmunni því þar eru svo margar brussur sem labba mann bara niður en hérna heima og alls staðar þar sem hann fær tækifæri á að monta sig sleppir hann glaður takinu af manni og röltir af stað. Hægt og rólega og stoppar reglulega til að athuga hvort hann sé ekki ööörugglega með fullt jafnvægi.

Soldið sætt annars hvernig hann byrjaði á því að þora að sleppa, við mæðginin sátum saman á gólfinu að lesa bók þegar skemmtilegt lag kemur í útvarpinu og minn maður bara ríkur upp, sleppir mömmu sinni og fer að dansa á fullu. Mamman að sjálfsögðu hækkaði og setti fleiri skemmtileg lög á og í u.þ.b 20 mín stanslaus tjúttaði stráksi á miðju gólfinu :D

Svo er orðaforðinn alltaf að stækka og alveg verður maður gáttaður á því sem kemur út úr drengnum. Vissi ekki að svona litlir hausar gætu lært svona mörg orð :D

Nú styttist óðum í jól númer tvö hjá Elvari og við vonum að hann muni í fyrsta lagi ekki fara með 5 pör af jólafötum eins og síðast og í öðru lagi að hann haldist kannski vakandi fram yfir fyrsta pakkann :) hver veit nema hann fái að "hjálpa" okkur við að skreyta jólatréð og svona ;)

Jæja fleiri fréttir næst

laugardagur, 15. nóvember 2008

Allt að gerast

Já ýmislegt búið að gerast síðan síðast enda mamma og pabbi ekki búin að vera nógu dugleg að skrifa hér. :)

Við fórum til Boston um miðjan október og heimsóttum ömmu og afa í útlöndum :) Svo stráksi er kominn með fullt af stimplum ekki orðinn eins árs.

Svo var haldið upp á afmælið með pompi og prakt þar sem litla íbúðin okkar var fyllt af okkar nánustu ættingjum og vinum sem kepptust um athygli litla snáða...sem var nú ekkert allt of ánægður með það í byrjun en sættist við alla þessa gömlu frændur og frænkur undir lokin :)

þroskalega séð er stóri strákurinn heldur betur að vaxa og hefur bætt aldeilis við orðaforðann, sýnir ýmsar listir og meira að segja tók mjöööög varkár fyrstu skref um daginn :) Svo er bara að sjá hvort hann fái það frá mömmu sinni að það þurfi að plata hann næstu vikurnar til að taka eitt og eitt skref þar til hann þorir einhverntíma seint og síðar meir að taka þessi ógurlegu skref aaaleinn :D

Svo er augljóst hver rútínan hans er þessa dagana því að henni var ruglað um daginn þegar mamman var í fríi og fór hún með hann til dagmömmunar í stað pabba og var þá enn annar áfanginn klifinn: fyrsta tveggja orða setningin sögð! "BÆBÆ PABBA" :D
já pabbi hans fer semsagt alltaf með hann til dagmömmunar og mamman sækir og þetta ruglaði hann heldur betur og ákvað hann þess vegna bara að pabbi hefði verið að fara með honum :D

Hehe svo er hann nú alveg ágætur þessi litla skræfa okkar, þó hann þori ekki fyrir sitt litla líf að standa sjálfur meðvitað þá ákvað hann að það væri ábyggilega öruggara fyrir hann að byrja að æfa sig í baði! Þar sem hann er umkringdur af sleipu og HÖRÐU postulíni!! eins mikið og maður panicaði þá urðum við einhvernvegin að segja duuuuuglegur líka :D hehe mixed emotions :)

Jæja bankinn tómur eins og er enda alveg vonlaust að reyna að muna svona langt aftur í tímann :) reynum að vera duglegri og þá koma kannski fleiri prakkarastrik með.
bæ í bili og elvar klappar fyrir ykkur (eins og af sjálfum sér...alltaf)

fimmtudagur, 18. september 2008

brúmm brúmm

Þessa dagana er fátt skemmtilegra en að leika í bíló.. Elvar þeytist um öll gólf með bíl í annari og gerir "brrrr" keyrandi alla bíla sem hann sér :) stundum reyndar hitta dekkin ekki á gólfið og bíllinn brunar um á þakinu en svona lang oftast fattar hann hvað snýr upp og hvað snýr niður ;)

Svo er hann líka voða duglegur að sýna manni hvað hann er STERKUR!!! maður spyr hann hversu sterkur hann er og þá steytir hann hnefana, kreppir alla vöðva og urrar af erfiði (ásamt því að verða eldrauður í framan af áreynslu) :) Hann er samt ekki alveg að skilja hvað foreldrarnir eru að vitleysast þetta að spurja hann hvað hann er stór... til hvers eruð þið eiginlega að benda svona upp í loftið með látum??? finnst þetta allt saman langt fyrir neðan hans virðingu auðsjáanlega :)

annars biður Elvar bara að heilsa öllum :)

fimmtudagur, 28. ágúst 2008

Stóri stóri strákur

Hann Elvar er búinn að taka algjörum stakkaskiptum síðastliðnar vikur og er nú farinn að labba ef maður leiðir hann með einni hendi, þjóta á eftir manni ef maður kíkir í annað herbergi og "klappa" kisunum alveg á fullu :) Alveg merkilegt hvað þessar elsku kisur eru þolinmóðar við stráksa. Hann rífur og lemur í þær með tilheyrandi öskrum og "aaaaaah" (sem við erum búin að kenna honum að segja þegar maður er góður) en þær liggja bara í rólegheitunum á sínum stað og horfa einkennilega á hann. í versta falli flýja þær af hólmi til að bjarga feldinum :)

Dagmamman er komin úr sumarfríi svo að við foreldrarnir getum loksins farið að minnka við okkur stressið og koma hlutunum aftur í samt horf :)
Annars á hann eflaust eftir að byrja að ganga fyrir árs afmælið sitt með þessu framhaldi því að það eru bara börn þarna sem að labba og hlaupa útum allt og hann er ekki allskostar sáttur við að þurfa að hanga á gólfinu og horfa.

Við afsökum takmörkun á myndum upp á síðkastið, hleðslutækið fyrir myndavélina er búið að vera týnt svo að við gátum ekki tekið neinar myndir. Nú erum við hins vegar búin að finna það svo það kemur eflaust myndaflóð á netið um helgina :)
bless í bili

sunnudagur, 17. ágúst 2008

Sandkassa skrímslið

Í dag fórum við saman á róló að leika.
Það var miiikið öskrað, ískrað og hlegið á meðan við hlupum um allt í rólunum, gormahestum og þá sérstaklega rennibrautinni sem að hann virtist ekki geta fengið nóg af. Hins vegar þegar leiðin lá í áttina að sandkassanum og litlu hendurnar komu við sandinn, kom pempíupúkinn heldur betur upp í Elvari og hann bókstaflega tryllisti úr HRÆÐSLU!! En með nægum tíma og spjalli um hvað sandur getur verið spennandi löbbuðum við mæðginin sátt heim á leið með sand í hverri skoru :)

Svo erum við foreldrarnir mikið að velta fyrir okkur hvar þessar tvær efri tennur hans ætla að koma niður. miðað við hvað okkur sýnis virðast þetta vera tennurnar tvær sitthvoru megin við framtennurnar :) þannig að ef þetta er ekki vitleysa í okkur þá verður hann ekkert smá sætur með riiisa frekjuskarð uppi og tvær tennur í neðri góm sem passa þá í gatið :D

Núna er bara vika þar til Anna Lísa dagmamma kemur úr sumarfríi og þá getur hann montað sig yfir því hvað hann er orðinn góður að þjóta útum allt :D hlökkum öll til :)

miðvikudagur, 13. ágúst 2008

Dansað við "i will survive"

video

Já eins og sjá má á þessu vídjói er Elvar alveg að brjálast úr stuði yfir glamúr-dívu-laginu "I will survive!". Hristi bossann og söng með hástöfum :D Takið eftir þegar söngkonan fer upp á háa c-ið þá lyftir hann svo virðulega upp handleggnum eins og til að taka undir!

Annars eru fullt fullt af fréttum héðan; foreldrarnir eru auðsjáanlega engan vegin nógu dugleg að skrá inn og fylgjast með hvenær stóru afrekin eru að gerast.
Þriðja tönnin er komin upp og sú fjórða er að brjótast í gegn :D Svo að í næstu viku verður kallinn væntanlega kominn með matching sett af tönnum uppi og niðri :)

Heimilið er orðin ein stór slysagildra þar sem maður hefur varla undan drengnum þegar hann flýgur um öll gólf, annað hvort bröltandi á brjáluðu hermannaskriði eða pompandi á einhverskonar rassa-fjögura fóta skriði :) Svo rífur hann sig upp og hleypur með hvaða húsgagni til að ná í fjarstýringar eða aðra dýra/stórhættulega hluti :)
Ennþá er samt fyndið hvað hann er varkár og einbeittur á svip þegar hann togar sig áfram með borðum til að komast á áfángastað :) beyglast allur í framan, starir á einn blett, út með rassinn og svo er "skjálftast" á leiðarenda :)

Hrikalega sætur þessa dagana...já bara eins og alltaf.
takk fyrir í bili

fimmtudagur, 31. júlí 2008

Orðinn ekkert smá duglegur að redda sér sjálfur!

video

mánudagur, 28. júlí 2008

Jæja er ekki kominn tími á smá fréttir

Eins og allt sem drengurinn tekur sér fyrir hendur ákvað hann að taka fyrstu veikina svona svakalega með trompi. Eftir að hafa verið með yfir 39 stiga hita í þrjá daga enduðum við með hann upp á barnaspítala hringsins þar sem hann var settur í lungnamyndatöku, blóð tekið og hann allur skoðaður. Þá nældi sér víst í væga lungnabólgu, streptókokka, augnsýkingu og kominn með astmaöndun! Svo apótekið í nágrenninu var tæmt og fúkkalyfjum og fleiru dælt í drenginn og hann var orðinn eldhress daginn eftir :)

þessa dagana þýtur hann um öll gólf og allt dót í skúffum, hillum og skápum fær ekki að vera í friði fyrir tætingi. Hann er líka kominn með uppáhalds leik sem felur í sér að fara í reipitog með stútkönnuna sína. Þá réttir hann manni hana og þegar gripið er á móti honum birtist risaglott og brjálaðir skrækir hljóma um götur Reykjavíkurborgar. Svo er togað og hent sér til og frá þar til annað missir takið og svo er leikurinn endurtekinn...brjálað stuð hér á bæ :)

Þar að auki er þessi leikur oftast framkvæmdur í miðjum matmálstíma þannig að bitar af ýmiskonar gúmmelaði fljúga um allt eldhúsið :) Þið sem hafið kannski skoðað myndirnar sjáið hversu mikið hann er að elska þetta nýtilkomna frelsi í mötun þar sem enginn partur líkamans þarf að svelta og maður þrífur graut undan handakrikunum, augnkrókum, tám og fleiru. :)

Svo fórum við í skírn til Patta og Önnu og var litli kúturinn þeirra skírður Patrekur Victor Patreksson :) þetta var æðisleg athöfn í heimahúsi og auðvitað gat stráksi ekki leyft einhverjum öðrum að stela sviðsljósinu frá sér og skríkti og söng allan tímann sem athöfnin fór fram :S frekar vandræðalegt fyrir foreldrana sem tróðu hverju sem þau fundu upp í hann til að reyna að þagga niður í honum. En þrátt fyrir þessar tilraunir hans til að fá athygli var athöfnin og öll veislan frábær!
TIL HAMINGJU MEÐ NAFNIÐ LITLI KÚTUR!!!

Svo fer heldur betur að styttast í að Karen komi loksins til landsins að sjá stráksa, hefur ekki litið hann augum síðan hann var tæplega 2ja mánaða! skamm til hennar :) og við getum ekki beðið eftir að fá að ærslast aðeins í henni!

Þar til næst
kveðja frá Skriðdrekanum mikla

þriðjudagur, 15. júlí 2008

39,5 gráður

Já stráksi er búinn að vera fárveikur í allan dag, fyrsta almennilega flensan tekin með trompi. Það byrjaði með smá kvefi í gær sem hann tók með sér heim frá dagmömmunni og eftir svefnlausa nótt og stighækkandi hita í stráknum endaði mamman á því að fara með Elvar í paranojukasti til læknis þegar hitinn var kominn upp í 39,5. Eftir að vera grandskoðaður með misgóðum undirtektum af hans hálfu (var frekar ósáttur við að vera rifinn úr öllu og potaður útum allt) var það eina sem læknirinn sagði "þetta er bara einhver veira sem hann hefur krækt sér í. Svo við vorum send heim með tilvísun á 60ml bossastíla og 500mg af þolinmæði næstu dagana.

fleira í fréttum; þriðja tönnin virðist vera að láta á sér kræla en miðað við hvað fyrsta tönnin var lengi að koma sér almennilega upp bíðum við bara róleg. Þarf annars endilega að fara að ná almennilegri mynd af þessu glæsibrosi sem Elvar litli er kominn með, skínandi í eina og hálfa tönn :)

Svo er hann farinn að skilja og bregðast við fimm orðum (svo eftir sé takandi) en það eru "ljós", "mamma", "kisa" "Elvar" og "pabbi". Til dæmis þegar við sitjum inn í stofu og við segjum "hvar er ljósið?" þá horfir gutti beint á ljósið, lyftir handleggnum og bendir á ljóskrónuna :) Ef við segjum "kisa" þá er flýgur hausinn í allar áttir þar til hann sér aðra hvora kisuna og svo er bent og skríkt eins og vitleysingur :)

Burtséð frá erfiðleikum í dag hefur verið bara blússandi hamingja hér á bæ. Aðlögunin gekk vonum framar og eftir 3 daga hjá Önnu dagmömmu var hann farinn að sitja sem fastast þegar við komum að sækja hann og teygði sig í átt til Önnu þegar við tókum hann upp :) gerist ekki betra :)

Endilega látið okkur svo vita hver les þetta á gestabókinni svo við sjáum hvort það borgi sig að halda þessari síðu uppi :)
bless í bili, Sóttkvíin á Öldugötu

þriðjudagur, 1. júlí 2008

Svona er ROSALEGA gaman hjá pabba!

video

föstudagur, 27. júní 2008

Elvar er búinn að eignast nýjan BESTA vin :)

video

laugardagur, 21. júní 2008

Tannálfurinn LOKSINS mættur :D

Í dag, 21 júní fannst fyrsta tönnin!
Þrátt fyrir að hafa klingt fyrir 3 mánuðum síðan bólaði ekkert á fullvaxinni tönn þar til í kvöld. Við vorum í mat hjá afa Kidda og Elvar var orðinn eitthvað fúll undir lokin svo mamman ákvað að nú hlyti stráksi að vera orðinn þreyttur svo það var þotið með hann út í bíl og brunað heim á leið. Sama hvað var svo sungið og blaðrað við hann þá nöldraði hann óvenju mikið og endaði það á því að mamman var farin að vöðla puttunum upp í honum til að draga athyglina eitthvert annað og viti menn, mamma rispaði sig á fingrinum!!! :D Hamingjusamasta rispa sem mamman hefur fengið!

merkilegt reyndar hvað þessar barnatennur er BEITTAR! Aldrei hefði manni dottið það í hug, kannski ekki skrítið að þessum elskum þyki frekar óþægilegt þegar þetta brýst í gegnum viðkvæman góminn.

Annars Fórum við til Vestmannaeyja í vikunni, alger landkönnuður þessi litli kall :D
Tók varla eftir því að við værum í 3 tíma siglingu hvora leið og klukkutíma keyrslu, brosti bara og sjarmeraði alla sem komu nálægt honum ... eins og venjulega.
Það var rosa stemmning og mikið klifrað, meira að segja elvar kom með að skoða Pompei norðursins hangandi framan á mömmu sinni og pabba. Svo þurfti pabbi að fara að vinna daginn eftir svo stráksi sat uppi með okkur þrjár kellur (mömmu, ömmu og langömmu) og leiddist ekki mikið að fá að vera miðpunktur alheimsins (aðeins meira en venjulega).

jæja við eigum yndislegan strák sem kvartar ekki yfir neinu og smælar bara útí heiminn, við erum heppnustu foreldrar í heimi! :D

mánudagur, 2. júní 2008

Bon Jour Elvar Ægir

Já við vorum að koma frá Frakklandi í nótt og boy var það gaman!
Við komumst enn og aftur að því að við erum heppnustu foreldrar i heimi! Elvar lét ekkert á sig fá, svaf þegar hann átti að sofa, vakti þegar hann átti að vaka og brosti allan tímann :D Þrátt fyrir allan þeytinginn sem við vorum á allan daginn og að við komum ekki upp á hótel fyrr en seint og komum ekki heim til Íslands fyrr en 2 í nótt. Steinsvaf í gegnum þetta allt!

Við fengum að sjá helling spennandi og Elvar gerði ekkert annað en að sjarmera frakka alveg upp úr skónum. Sérstaklega þegar feðgarnir voru að skemmta sér saman þá kiknaði hver einasti kvennmaður í hnjánum við þessa yndislegu sjón :)

Annars eru komnar yfir 50 myndir á myndasíðuna hans frá Parísarferðinni
kveðjum að sinni

mánudagur, 26. maí 2008

Labbað að heiman??

Já þessa dagana kemst fátt annað að en göngutúrar hjá Elvari, hann er varla búinn að snerta gólfið með tánum þá er hann lagður af stað og ekkert fær hann stöðvað nema að maður rífi hann upp af gólfinu. Núna eru það ekki nokkur skref með aðstoð af og til (ýtt á hælinn og þá lyftist löppin) heldur rísa fæturnir af gólfinu með taktföstum hreyfingum og það er hlaupið af stað, hann er meira að segja farinn að ná að stjórna áttunum sem hann vill fara í!

Svo vorum við að breyta vagninum í kerru og þessa dagana er ekkert nema hamingja hér á bæ, enda líka ekki skrítið að það sé meira spennandi að sjá hvert maður er að fara og upplifað þessa stórmögnuðu veröld í stað þess að þurfa alltaf að horfa á sömu gömlu mömmu og pabba :) Hann sýnir svo ánægju sína með orgi og hoppi (þrátt fyrir að vera beislaður niður)

Bablið hækkar nú með hverjum deginum og oftar en ekki fáum við fjölskyldan skrítin augnarráð frá fólki í verslunum bæjarins þegar Elvar ákveður að taka enn eina aríuna. Það er spurning hvaðan hann fær þessi læti? Ekki eru nú foreldrarnir háværir?? Alveg er það yndislegt þegar hann uppgötvar (nokkrum sinnum á dag) hvað það er gaman að reyna að æpa með lokaðann munninn og fer all langur tími í að reyna að ná sem hæstum tónum gegnum samanbitnar varirnar.

Annars erum við fjölskyldan að fara saman til Parísar eftir 3 daga! Fyrsta utanlandsferðin hans Elvars innan seilingar og „Loksins“ fær hann að nota passann sinn sem hann fékk þegar hann var tæplega 3 mánaða :) Við foreldrarnir erum búin að rífa út allar ferðatöskur heimilisins og sjáum fram á að það verði varla nóg, svo nojuð erum við að vera ÖRUGGLEGA með allt sem mögulega gæti þurft í þessa fjóra daga sem við verðum í burtu. Verst hvað við erum að fljúga á asnalegum tíma þegar við förum heim því að við leggjum ekki í hann fyrr en kl 10 á sunnudagskvöldinu... sem þýðir að við verðum ekki komin heim fyrr en einhverntíma eftir miðnætti á mánudegi og mun það eflaust vægast sagt raska svefn rútínunni hans Elvars.

Svo erum við alltaf að reyna að auka við fjölbreytileikann í matnum hans Elvars og virðist hann vera meira en lítið tilbúinn til þess. Alltaf þegar við réttum honum eitthvað nýtt opnast Mikla Gljúfur og augun breytast í undirskálar, handleggirnir fara á flug og allur skrokkurinn hendist í átt að þessum svaka spennandi mat! Þegar foreldrarnir jafna sig svo af hláturskastinu og hann fær loksins að bragða þetta lostæti (alveg sama hvað það er) er pælt og grett sig í 1,5 sek og svo byrjar brjálæðið aftur...MEIRA!!! merkilegt nokk að honum virðist ekki finnast NEITT vont nema gulrætur og leiðinda grauturinn sem hann er kominn með ógeð á :)

Jæja komið gott í bili, frétta annállinn tómur og kominn tími til að skella sér í bólið.

miðvikudagur, 14. maí 2008

Allt að gerast

Já við fórum mæðginin til Akureyrar um helgina á eins konar ættarmóts morgunverð og eins og við mátti búast var tekið á móti Elvari með þúsund kossum og knúsum og oftar en einu sinni var móðurinni boðið að fara bara og skilja kallinn eftir. Bræður afa Kidda féllu alveg fyrir honum en þá sérstaklega útaf augljósum áhuga hans á formúlu 1, hann sat sem sagt með öllum köllunum inn í sjónvarpsherbergi og tók ekki augun af sjónvarpinu. Skríkti reyndar stundum af hamingju þegar "vitlaust" lið tók framúr en það sýnir bara að mamman þarf ekki að þröngva sínu liði upp á drenginn því hann heldur klárlega með Ferrari :D
Annars var nú svolítið stress að fara með hann á svona nýjan stað, í nýju rúmi með vitlausri rútínu og bjóst maður alveg eins við því að vaka alla nóttina og standa í svæfingum langt fram eftir kvöldi. En eins og alltaf (fer maður ekki að venjast því?) fór hann að sofa á réttum tíma, rotaðist strax og vaknaði ekki fyrr en um morguninn :D
hins vegar komumst við að því að bíllinn hans afa er langt í frá í uppáhaldi hjá Elvari og um leið og hann svo mikið sem sá inn í bílinn var hann farinn að kvarta hástöfum um það að hann nennti ekki lengur að hanga inn í þessum leiðindabíl glápandi á sætisbakið í fimm tíma - alveg ákveðinn í því að gera okkur ferðina heim ekkert of auðvelda :) ekki bílakall auðsjáanlega :D

Svo tók ofurhetjan okkur upp á svolitlu óvæntu um daginn, mamman var að leyfa honum að standa á gólfinu eins og hann gerir svo gjarnan (spítukallinn) og haldiði að drengurinn hafi ekki ákveðið að fara bara að LABBA!!! upp með annan fótinn, rétta úr og stíga, þetta gerði hann svo ítrekað og endaði á því að labba alla stofuna á enda! Svo að núna fær hann að leika sér að þessu í nokkar mínútur á dag til að æfa sig en ekki meira því að mamman er algjörlega paranoid að hann verði ábyggilega hjólbeinóttur eða eitthvað þaðan af verra ef þetta heldur svona áfram :)

jáh ekki klárast fréttirnar, núna akkúrat meðan þetta er skrifað byrjaði Elvar allt í einu að garga (sem er nú ekki eðlilegt því hann rumskar aldrei) og mamman skildi ekkert í því að hann hætti ekki svo að hún ákvað að kíkja inn í herbergi og hvað haldiði að drengurinn hafi ákveðið að gera? Já svefnleikfimin er auðsjáanlega komin eitthvað út í öfgar því að hann var búinn að rúlla sér á magann í svefni og var sko heldur betur ekki sáttur við það! Merkilegt nokk að drengurinn nennir ekki einu sinni að rúlla sér þegar hann er vakandi og hefur aldrei lagt neinn metnað í það (þetta er bara óþarfi finnst honum auðjáanlega) en á meðan hann sefur er auðvitað allt annað mál er það ekki? :)

Svo byrjar Elvar Ægir hjá "dagmömmu" í næstu viku, það er ekkert pláss laust hjá "alvöru" dagmömmum svo að við settum upp auglýsingar útum allt og loks svaraði ein heimavinnandi húsmóðir sem var tilbúin að taka hann að sér hálfan dag eða svo. Honum á eflaust ekki eftir að leiðast að vera miðpunktur alheimsins þessa klukkutíma því að þegar við fórum í heimsókn voru börn dagmömmunar heima (8 og 9 ára) og þau gjörsamlega féllu fyrir honum og eins og honum einum er lagið sjarmeraði hann alla algjörlega upp úr skónum. Það verður gaman að sjá hvernig þetta gengur svo mamman geti loksins farið að vinna eitthvað :)

Jæja nóg komið, við kveðjum í bili
fjölskyldan á Öldugötu

fimmtudagur, 24. apríl 2008

enn og aftur...ÞVÍLÍKT DRAUMABARN!

Já síðan við settum hann inn í sitt herbergi hefur hann sofið frá 9 á kvöldin til svona 7 (fær þá að drekka) og sefur svo áfram til 10. Skemmtilegt nokk að mamman svaf yfir sig um daginn og mætti of seint í mömmuleikfimina því að Elvar svaf til korter yfir tíu! Hún fékk ófá illu augnaráðin frá hinum mömmunum þegar hún sagði ástæðu þess að hún hafði mætt of seint :D
annars hlýtur eiginlega að vera að Elvar sofi bara svona mikið betur í nýja rúminu sínu heldur en litlu sætu vöggunni sinni því að það var nær hverja einustu nótt sem að mamman rumskaði að minnsta kosti ein hendi og ein löpp löfðu út fyrir rimlana og plássið var heldur lítið. Núna hins vegar hefur hann allt það pláss sem hann vill og suma morgna þegar hann vaknar til að drekka liggur hann eiginlega þver í rimlarúminu... stundar auðsjáanlega svefnleikfimi eins og mamman hefur alla tíð gert :)

Svo er grautaúrvalið alltaf að aukast, við erum farin að setja alls kyns mauk útí grautinn og alltaf er það jafn gaman þegar hann smakkar nýtt bragð í fyrsta skipti! oft á tíðum kúgast hann alveg eins og vitleysingur yfir fyrsta bitanum, grettir sig heil ósköp og hendist til og frá en svo þegar hann er búinn að melta bragðið í smá stund er ekkert sem getur stöðvað hann...MEIRI GRAUT!!! Alveg merkilegt annars hvernig hann fer að því að borða og syngja í einu, með hverri skeið fylgir alltaf svona 5 sek baaaah og bababaaa og bleeeeeh, veit ekki alveg hvernig hann fer að þessu og hvað þá hvaðan hann fær þetta?? *hmm* ;)

Já og fleiri fréttir!
Elvar prufaði kopp í fyrsta skipti í vikunni, við fjölskyldan vorum að versla í krónunni þegar við rákum augun í kopp og ákváðum bara að að það væri aldrei of snemmt að kynna hann fyrir þessu furðulega apparati.
svo þegar heim kom var hann rifinn úr og skellt á kopp! í fyrstu þurfti smá hjálp frá pabba og öryggið sem pabbahönd gaf var nóg til að sleppa og sitja alveg sjálfur, þar til við ákváðum að nú væri hann búinn að sitja nógu lengi og ákváðum að hætta þessari vitleysu...en viti menn, hann var búinn að pissa! Það var mikið um klapp og "duuuglegur strááákuuuur" og þó hann hafi náttúrulega ekki haft hugmynd um hvað væri í gangi voru hans fyrstu kynni af þessu koppadóti bara nokkuð ánægjuleg :)
vonandi verður hann bara búinn að mastera koppinn alveg fyrir ársafmælið ;)

jæja nóg komið af fréttainnskoti í dag
góða nótt

sunnudagur, 20. apríl 2008

Stóri stóri strákur

Smá auka innskot því strákurinn okkar er svo STÓR! í gær, 19 apríl, svaf hann í fyrsta sinn í sínu eigin herbergi og gekk bara nokkuð vel :)

laugardagur, 19. apríl 2008

orðin of stór fyrir brjóst?

Já strákurinn okkar ákvað hér um daginn að nú væri hann orðinn of stór fyrir brjóstagjöf og tími kominn fyrir eitthvað meira. Mamman var búin að ímynda sér hræðilegan tíma þegar þar að kæmi að hætta á brjósti en elvar ákvað þetta alveg sjálfur og sættir sig eingöngu við brjóstið á nóttunni þegar hann er hálfsofandi. Með þessu fylgir svo sá lúxus að hann er SADDUR á kvöldin þegar hann fer að sofa og sefur straight til svona 6/7 á morgnanna, fær brjóstið og sefur svo áfram til svona 8/9... alveg eigum við besta barn í heimi!!!

En alveg er það skemmtilegt hvað first-time foreldrar eru clueless, Elvar hefur aldrei setið þannig lagað nema bara með hellings stuðningi þar til um daginn þegar ein vinkona mömmu spurði hvort hann væri farinn að sitja? "ha? sitja? ég bara veit það ekki" svo mamman skellti honum upp og voila! Drengurinn kann að sitja! :) Við treystum því ekki fullkomlega ennþá og oftast höfum við gjafapúðann í kring um hann en oftar en ekki er að algjör óþarfi og hann leikur sér með bók alveg öruggur.

Bablið eykst líka með hverjum deginum, oft á tíðum samkjaftar hann stanslaust í hálftíma/klukkutíma og er hann farinn að endurtaka "dada" og baba" alveg fram og til baka...pabbinn er alveg viss um að þetta séu í raun fyrstu orðin hans og þýði "pabbi"...bæði tvö :)
Þar að auki er hann farinn að herma eftir ýmiskonar hreyfingum sem hann sér og meðal annars byrjar hann allt í einu að "tyggja" á fullu og þegar mamman er að ulla og geifla sig framan í hann reynir hann eftir fremsta megni að gera eins :) alveg yndislegur!!

föstudagur, 4. apríl 2008

5 mánaða skoðun

amma Gústa er komin til landsins og voru heilmiklir fagnaðarfundir á milli þeirra, gaman að sjá hvað litli kútur féll strax fyrir ömmu sinni og brosti útí eitt allan tímann sem þau spjölluðu saman.

Jæja þá er "litli" maðurinn okkar búinn að fara í 5 mán skoðun og kom nokkuð vel út bara. Ljósan hefur eflaust eitthvað verið utan við sig því að þessi eina sprauta sem hann átti að fá endaði á því að vera tvær. Ljósan mundaði sprautuna, stakk í lærið og þegar kom að því að sprauta drenginn með mótefni gegn öllu endaði það allt saman á gólfinu, sprautunálin hafi þá losnað og sat eftir í lærinu... Elvar huggaðist fljótt og eftir að hafa kurteysislega sagt okkur að þetta hefði nú verið óþarfi var sprauta nr 2 munduð og miðað á hitt lærið. Það var eins og hann vissi hvað var að fara að gerast því að jafnvel áður en sprautan lenti var þessi líka glæsilega risa skeifa komin framan í hann og svo var ÖSKRAÐ! En eins og sannri hetju sæmir jafnaði hann sig strax og var farinn að sjarmera þessar þrjár kellur sem stóðu yfir honum 3 sek seinna :)

Hann er annars orðin svooo stór, heilir 68cm sem er heillri kúrfu fyrir ofan meðaltal en hins vegar heldur hann áfram að brenna eins og pabbi sinn og þyngist eiginlega ekki neitt. Þrátt fyrir það lítur hann vel út að sögn ljósmóðurunnar og hafði hún sérstaklega orð á því hvað hann væri ótrúlega styrkur. Enda líka alltaf í líkamsrækt :)

Svo til að toppa daginn þá fékk stráksi fyrstu klippinguna sína, hann var farinn að líta aðeins of mikið eins og lukkutröll, hanakampurinn orðinn ívið of hár :) Pabbinn gerði allar hundakúnstir, pípti og söng eins og vitleysingur til að halda athyglinni á meðan mamman klippti hálfskjálfhent hvern lokkinn á fætur öðrum... myndir til að sýna glæsilegheitin hér til hliðar :)

Jæja þá fer amma Gústa að koma og Elvar getur ekki beðið :)

miðvikudagur, 12. mars 2008

Gestabók

Jæja þá erum við búin að setja inn gestabók fyrir ALLA til að skrá sig :D...

mánudagur, 10. mars 2008

Svo gaman í baði...

video

Já ákváðum að skella eins og einu baðmyndbandi með, þar sem að Elvar er hættur að fara í ungbarnasund þá verður maður að halda áfram að venja hann á að fá vatnsgusurnar framan í sig. með þessu áframhaldi þurfum við engar áhyggjur að hafa að hann verði eins og pabbi sinn með UFO hringinn utan um kollinn ;)
Bara verst hvað maður er upptekinn af því að naga á sér hendurnar (Og pabba hendur) til að hafa tíma til að vera í baði og busla...sem hann síðan undir lok baðsins gaf sér nokkrar mínútur í, foreldrunum og handklæðalagernum til ómældrar ánægju :)

laugardagur, 8. mars 2008

4ra mán skoðun

já við fórum í fjögura mánaða skoðun núna um daginn og þrátt fyrir að Elvar væri bara búinn að bæta á sig rúmum 200 gr þá hefur hann lengst um 2,5cm og orðinn 66,5cm langur. Að sjálfsögðu þurfti paranojaða móðirin að spurja hvort það gæti nú ekki verið að hann væri hreinlega ekki að fá nóg þar sem engin fita festist utan á honum en ljósmóðirin gaf mjög skemmtilegt svar: horfðu nú aðeins á drenginn, í fyrsta lagi, sýnist þér honum líða ill (þá lá hann á vigtinni, allsber og skríkjandi af hamingju) og í öðru lagi, horfðu aðeins á útlimina á honum (sem móðirin gerði og eftir nokkra stund af tómu augnarráði sá hún hvað ljósmóðirin var að tala um, hann hættir ekki að hreyfa sig - allir útlimir á útopnu í allar áttir). Þegar trega mamman loksins fattaði þetta sagði hún svo að sum börn bara hreinlega brenndu öllu sem þau settu ofan í sig og hann væri þó allavega að setja MIKINN metnað í lengdina :D

það var ánægð og montin mamma sem hélt á stóra sráknum sínum útí kuldan þennan daginn :) við vitum reyndar ekki hvaðan hann fær þessa gríðarlegu brennslu og hvað þá þessa ofvirku lengingu því að eins og flestir vita þá eru foreldrarnir ekkert í hærri kantinum ;)

annars ákváðum við að hætta í ungbarnasundinu, eða það er að segja, fara ekki á framhaldsnámskeiðið því að þetta er upp í mosfellsbæ og við getum alveg eins farið sjálf með hann í sundhöllina og kennt honum þessar æfingar sem við erum búin að læra. Í staðin ætlum við að athuga ungbarnasund þegar hann verður svona 6-8 mán og læra þá nýjar og skemmtilegar æfingar sem hæfa enn stærri strákum.

Enn eru engar tennur komnar almennilega upp og klingir bara rétt í þessum þrem sem við fundum fyrir 2 vikum síðan. Um daginn fékk hann smá hita og lét alveg eins og vitleysingur í munninum á sér svo að við vorum alveg viss um að nú mundu þær spretta en það virðist vera eins með þetta og veltinginn, hann sýnir okkur að hann geti þetta og svo nennir hann ekkert að vera að standa í því að klára verkið almennilega ;) hljómar svolítið eins og þegar hann var að koma sér í heiminn :D

jæja við mæðginin ætlum að fara að vekja pabba með koss á kinn og slefi...

sunnudagur, 2. mars 2008

Jæja vinur, viltu ekki bara fara að slappa af...

já drengurinn er alltaf jafn mikið að flýta sér og ákvað að ein tönn væri nú ekkert nóg svona til að byrja með heldur splæsti í ÞRJÚ stykki!
Eflaust eru þær að springa upp þessa dagana þar sem litli kútur fékk hita í gær og var alveg ómögulegur þar til hann lognaðist útaf og svaf í tæpa 7 tíma!
Annars fer að styttast í 4ra mánaða skoðun (sem er nú ekki venjan en útaf nojaðri mömmu ákvað læknirinn að leyfa það) og það verður gaman að vita hvort að Elvar fari nú ekki að slefa bara í 7 kílóin? æj hvað það væri gaman.

Annars heldur hann áfram að vera algjör geisli við allt og alla, skríkir og hlær hátt alla daga og meira að segja ætlaði langamma Ása varla að trúa því að svona lítið barn gæti hlegið svona ofsalega stórkallalega og MIKIÐ :D

over and out

laugardagur, 23. febrúar 2008

FYRSTA TÖNNIN FUNDIN!!!

Já það er stærðarinnar dagur í dag! Við fjölskyldan fórum í heimsókn til Ömmu Ingu og langömmu Ásu og eins og svo oft greip amma skeið og fór að vöðla henni útum allan munn á Elvari. OG VITI MENN, *kling* heyrðist í neðri gómnum vinstra megin! Reyndar er hún nú ekki búin að komast alveg í gegn en það fer eflaust að styttast heldur betur :)
Svo fékk drengurinn tannfé frá ömmu Ingu: ÆÐISLEGA flott teinótt jakkaföt með vesti og öllu, sem verða ekkert smá flott næstu jól - feðgarnir þá í alveg eins jakkafötum og skyrtu í stíl :)

Þannig að fyrsta tönnin hans Elvars mætti á svæðið þegar hann vantaði enn viku upp á 4ra mánaða afmælið :D

svo er svefnreglan alveg komin á og drengurinn ákvað að láta okkur ekkert hafa fyrir þessu því að núna, tæpri viku eftir að við fórum til svefnráðgjafa, setjum við hann í vögguna eða vagninn glaðvakandi, kyssum hann á kinnina og löbbum svo bara í burtu og 5 sek síðar er strákurinn sofnaður án þess að kvarta neitt!! við sem bjuggumst við allavega 2vikna öskri það varð að 2 daga smá nöldri og svo var hann bara orðinn sáttur!

kv, montnustu foreldrar allra tíma!

Eeeendalaus hrúga af sundmyndum

já kæru áhangendur, þið afsakið allan hellinginn af ungbarnasundsmyndum en þar sem lífið snýst um vatn þessa dagana þá eru allar myndir af því og þær eru bara ALLAR svo hrikalega sætar að það verður erfiðara og erfiðara að velja og hafna...

kveðja, Elvar sundkappinn mikli

miðvikudagur, 20. febrúar 2008

Maður stækkar og dafnar með hverjum deginum!

Já Elvar er heldur betur að þroskast með hverjum deginum sem líður, í dag greip hann dótið sitt í leikgrindinni með vinstri, lék sér aðeins með það, hristandi og skríkjandi, fékk svo leið á þeirri hendi og skipti svo yfir á hægri hönd þar sem hann hélt svo áfram að leika sér með það...þetta gerði hann svo fram og til baka þrisvar sinnum! ohh svo flottur!
Hann stendur sig eins og hetja í sundinu, næstum farinn að sætta sig við það að sér sé hent í kaf og vælir bara svona í annað hvert sinn ;) hann er auðsjáanlega ekki þessi kaftýpa :D En það er víst hægt að kenna manni allt svo að undir lok námskeiðsins verður hann vonandi orðinn algjör súperstjarna í köfun.
Svo heldur hann bara áfram að halda ræðu fyrir heiminn allan liðlangann daginn og ekkert fær hann til að hætta nema MATUR! :D

Á mánudaginn fórum við fjölskyldan saman til svefnráðgjafa þar sem kominn er tími til að fara að kenna drengnum að sofna sjálfur eins og stórir strákar gera :) við foreldrarnir vorum búin að undirbúa okkur undir kjarnorkustyrjöld á heimilinu næstu tvær vikurnar (enda vantar ekki skapið í hann Elvar okkar). Okkur til MIKILLAR gleði virðist drengurinn ætla að verða ótrúlega samvinnuþýður og nöldrar, reyndar frekar mikið hátt, bara svona í 10 mínútur og svo er eins og hann hugsi "hmm á sem sagt ekki að láta þetta eftir mér?!? jæja þá nenni ég þessu ekkert...zzz"
æææðislegur hreint út sagt!

Jæja Elvar var að banka í mig og biðja um að fá að fara upp í rúm :D

þriðjudagur, 5. febrúar 2008

Þriggja mánaða skoðun

í dag fórum við fjölskyldan í 3ja mán skoðun og er ekki hægt að segja að eftirvæntingin væri mikil þar sem Elvar átti að fá SPRAUTU! Við mættum og drengurinn var mældur í bak og fyrir, búinn að stækka um 11 cm síðan hann fæddist og orðin tæp 6kg sem að reyndar gaf mömmunni smá sjokk því að hann er búinn að vera með smá veiki í sér í tvær vikur og var því bara búinn að þyngjast um 200gr síðan hann var 2ja mán. En ljósan var snögg að sannfæra okkur að í rauninni þyrfti hann ekki þyngjast um meira en 80gr á viku svo að miðað við að börn þyngjast venjulega ekkert þegar þau eru veik en hann hefur náð að bæta þessum 200gr á sig á tveim vikum, sem er mjög gott :)
já já paranojan er alveg í hámarki þegar maður er með sitt fyrsta YNDISLEGA barn :D

svo var komið að stóru stundinni, dadadadaaaammm! sprautan, foreldrarnir gripu andann og lokuðu augunum á meðan Elvar chillaði í rólegheitum hjá pabba sínum blissfully unaware um hvað var að fara að gerast... svo kom stingurinn og Elvar gretti sig, skríkti eitthvað um að þetta hefði nú verið óþarfi en á innan við tveim sekúntum var hann búinn að gleyma og fyrirgefa og farinn að hlægja og sjarmera barnalækninn aftur.

Það er nú soldið merkilegt hvað drengurinn hefur ótrúlega gaman að því að sjarmera fólk og eins og að athuga hversu mikið hann nær að bræða á sem stystum tíma. "hah, 1,02 sek, nýtt met!". Alltaf um leið og einhverjir koma að honum og maður mundi búast við að hann yrði jafnvel pínu hræddur við allt þetta ókunnuga fólk þá fer hann alveg í bráðngírinn og brosir útað eyrum, hlær og skríkir.

Í kvöld fórum við svo í fyrsta skipti öll saman í ungbarnasundið þar sem pabbinn var loksins ekki að vinna. Við keyptum vatnshelda myndavél og náðum frábærum myndum sem að við getum ekki beðið eftir að framkalla og setja inn á netið til að sýna ykkur. Meðal annars fór Elvar í fyrsta skipti í kaf og ef mamman hefði ekki verið að vesenast þetta með flassið ofaní þá hefði hann staðið sig eins og hetja en í staðinn brá honum allsvakalega við það og kom heldur ósáttur upp úr. EEEn eins og alltaf þá jafnar hann sig alltaf eins og skot og brosið brýst fram á nóinu :)
Svo er drengurinn alltaf jafn heppinn að fá að drekka um leið og tíminn er búinn og beint í stólinn þar sem hann rotast og vaknar endurnærður þegar heim kemur... ohh þvílíkt yndislegt líf :) Eftir sitja svo foreldrarnir alveg búnir á því eftir erfiðan dag ;)


Jæja þá er kominn svefntími fyrir litla skæruliðann svo við bjóðum góða nótt

laugardagur, 26. janúar 2008

Loksins kemur smá pabba-innskot...
Þrátt fyrir veikindin heldur Elvar Ægir áfram að dafna. Búinn að vera svo duglegur að æfa sig með mömmu og pabba. Farinn að grípa í huti úr leikgrindinni og vera svo flottur að ýta sér upp þegar hann liggur á maganum. Tinna fór með Elvar upp á læknavakt á fimmtudaginn og fékk tvennskonar púst til að hjálpa greyinu að anda. Ég vona bara að hann fari að lagast svo að við komumst nú loksins með hann í ungbarnasund (misstum af fyrsta tímanum á föstudaginn). Gulli afi er búinn að vera í heimsókn núna um helgina, Allt of langt síðan Elvar fékk að sjá afa sinn; síðast var það í skírninni. Bara verst að hann skuli hafa misst af ungbarnasundinu. Svo kemur Gústa amma í heimsókn næstu helgi. Við förum svo fljótlega að huga að bandaríkjaferð. Fæðingarorlofið hjá mér er því miður búið; búinn að vera besti tími lífs míns að fá að kynnast syni mínum og sjá hann dafna svona fyrstu mánuðina. Mæli að minnsta kosti með þessu fyrir alla. Anyways, við hjónin þurfum að fara að sofa og ég er búinn að vera alltof lengi að skrifa þetta.
Kveðja Pabbi

mánudagur, 21. janúar 2008

Hóst og Hnerr

Jæja þá er fyrsta veikin búin að láta á sér kræla. mamman varð veik síðustu helgi og þrátt fyrir 39stiga hita þá snerti ekkert sterka strákinn. Í tæpa viku var hóstað og snurlað framan í drenginn (þó eins lítið og hægt var) en hann lét sko ekki á sjá, svo núna á föstudaginn byrjaði að surga í litla kroppinum og á laugardaginn var brunað upp á læknavakt því að þvílíkur var hóstinn. Haldiði að hann hafi ekki nælt sér í barkabólgu greyið litla! Mæðginunum var sagt að hafa engar áhyggjur og smella bara eins og einum stíl í bossan ef allt væri ómögulegt sem og var gert um kvöldið og þá loksins var brosað útað eyrum af gleði...þrátt fyrir að hóstinn væri enn til staðar þá leið drengnum svona líka mikið betur og var mikið hlegið, eða þar til hann lognaðist útaf af þreytu og svaf í 13 tíma með nokkrum drykkjupásum!
Í dag er hann svo allur að koma til, hóstar og beljar svona af og til en er alveg hættur að ná varla andanum fyrir látum.

Gleði og hamingja á þessum bæ aftur

mánudagur, 14. janúar 2008

Til hamingju litla fjölskylda í Kef

Jæja þá er Elvar rétt orðinn 2og1/2 mán gamall og strax kominn með leikfélaga í boði Katrínar :)
Katrín eignaðist sem sagt litla (og þá meina ég litla) sæta dömu síðastliðinn fimmtudag, eða þann 10 janúar. TIL HAMINGJU!!!
Við fjölskyldan á Öldugötu bíðum spennt eftir að mamman losi sig við bullandi kvefið sem hún náði sér í um helgina svo að hún sé húsum hæf... hvað þá í kring um svona glænýja prinsessu. Hlökkum ekkert smá til að Elvar verði "þessi stóri" þegar við förum í heimsókn því að krúsin er bara 49cm! omg Elvar var aldrei svona lítill!

Faðm og knús til Katrínar, Kristjáns og óskírðar Walker

þriðjudagur, 1. janúar 2008

Gleðilegt nýtt ár!

Fyrstu áramótin hans Elvars voru ekkert smá æðisleg! Foreldrarnir (þó aðallega nojaða mamman) voru búnir að undirbúa sig fyrir heilan sólarhring af organdi hræddu ungabarni og að Elvar myndi vera alla ævi að jafna sig á þessari hræðilegu lífsreynslu sem hann þyrfti að upplifa bara tveggja mánaða gamall.
Annað kom víst á daginn því að þegar klukkan sló tólf var okkar maður enn í fullu fjöri og naut ljósanna og sprenginganna alveg í botn útum stofugluggan.
Amma Inga fagnaði nýju ári með okkur fjölskyldunni og skáluðum við öll fjögur þegar 2008 gekk í garð en síðan fengum við mamma og pabbi að kíkja út í áramóta partý.
Þegar örþreyttir foreldrar skriðu svo inn um fjögur leitið var Elvar varla búinn að láta vita af sér og svaf öll lætin af sér :)

Vonandi verður árið 2008 jafn gott fyrir Elvar Ægi Bjarkason og 2007 reyndist honum.
kv, fjölskyldan á Öldugötunni

þriðjudagur, 25. desember 2007

Gleðileg Jól!

Litla fjölskyldan á Öldugötu átti sín fyrstu jól í gær og ofsalega voru það yndisleg jól!
Mamman lærði að setja ungabarn ekki í jólafötin fyrr en um það bil 0.009 sek áður en jólin byrja og lærði hún það the hard way. Elvari tókst án gríns að fara með fern pör af jólafötum svo að Kata, heiðarleg tilraun var gerð til að hafa drenginn í flotta outfittinu frá þér en það fór eftir 20 mín í óhreina stampinn þar sem skitið var langt út fyrir bleyjuna :)
Eftir að hafa komið sér í hrein föt var haldið út til að keyra út jólapakka og brunað til afa Kidda til að gera fjölskyldu leyndarmáls salatið... aldrei of snemmt að læra.

Jæja þá var mamman orðin stressuð að maturinn yrði ekki kominn á borðið klukkan sex svo að keyrt var heim á leið og pabbinn skellti sér í eldhúsið og töfraði fram mergjaðan hamborgarhrygg á meðan mamman var að rembast við að klára síðustu jólagjöfina. Allan tíman lá Elvar bara og naut lífsins þegjandi og hljóðalaust með bros á vör...þar til að maturinn var tilbúinn og fyrsti skurðurinn í hrygginn var gerður þá ákvað sá stutti að heimta meiri athygli og orgaði eins og ljón. Svo matartímanum var skipt í hollur og annað borðaði meðan hitt var að reyna að róa Elvar. Svo eins og klukka hætti hann að orga þegar við vorum búin að borða, steinsofnaði og svaf mest alla gjafaupptökuna.

Þúsund þakkir til allra, æðislegar gjafir sem hann fékk! píp og skruðningar koma nú úr öllum hornum og fataskápurinn fyrir næsta árið tilbúinn :D

Svo kom amma Inga í heimsókn og þá ákvað Elvar að sýna sínar bestu hliðar og brosti sínu blíðasta þar til hann rotaðist um 11 leitið og SVAF Í 7 TÍMA!!! verst að foreldrarnir höfðu ekki vit á því að fara að sofa um leið því að þá hefðu mörg svefnmet verið brotin og úthvíld augu opnast á jóladagsmorgun... í staðin vöktum við til rúmlega 2 og erum vægast sagt andstæðan við útsofin :)

Gleeeeðileg jólin!!!

þriðjudagur, 18. desember 2007

Elvar er orðinn fullorðinn!

jæja þá er drengurinn vaxinn úr grasi ;)
síðastliðna þrjá daga tók stráksi upp á því að ekki geta fengið nóg að drekka, alveg sama hvað mamman borðaði og drakk til að auka við sig þá var það dropi í hafið og Elvar orgaði á meira (sem hann nú oftast fékk, eftir nokkrar tilraunir). Nú virðist þetta vera að enda og stráksi verður mannalegri með hverri mínútunni enda líka frá því í byrjun þessa vaxtakipps hefur hann haldið haus.
Já Elvar Ægir þarf ekki lengur skjálfandi hendur sem halda við viðkvæma hálsinn hans, heldur "stendur" nú hnakkreystur allan daginn svo ekkert getur haldið aftur af honum.
Oft á tíðum þegar hann tekur pirringsköst, finnst foreldrunum hann aðallega að kvarta yfir því að vera ekki farinn að geta labbað og hreinlega getað bara rölt í burtu frá þessu veseni.

Annars styttist nú heldur betur í jólin og við familían búin að standa okkur eins og hetjur þegar jólaundirbúningur er annars staðar. Jólagjafirnar allar tilbúnar inn í skáp, innpakkaðar og merktar, jólakortin komin í póst og allt skreytt og fínt. Núna er bara jólahreingerningin eftir og mun hún eflaust bíða fram á síðustu stundu þar sem að Elvar heldur okkur uppteknum með látunum í sér :)

sem sagt, Elvar fer bráðum að heiman og litla fjölskyldan á Öldugötu er alveg að komast í jólagírinn.

föstudagur, 14. desember 2007

Bréf til jólasveinsins

Kæri Jóli
Sökum sífelldra eftirspurna eftir vöntunarlista fyrir Elvar litla um jólin kemur hér
"Óskalisti Elvars"

*Leikteppi (þetta marglita með bogunum með öllu dótinu á/jafnvel tónlist)
*ýmis þroskaleikföng, líka til að setja á kerru/barnabílstól
*Vettlingar, húfa og bodysett fyrir 3mán+ (mjúka ullin úr Þumalínu)
*Föt 9-12 mán (74 og uppúr)
*órói til að hengja úr lofti fyrir ofan skiptiaðstöðuna (svo manni leiðist nú ekki)
*mjúkbækur
*camouflage samfellur frá Fifa (fyrir mömmu)
*öryggisvörur fyrir heimilið (foreldrarnir eiga alveg eftir að babyproof heimilið)
*gúmmí matarsett (fyrir byrjendur, þegar þar að kemur)
*sundbleyjur
*Leikföng frá barnasmiðjunni

Jæja, meira getur það nú ekki verið, vonandi hjálpar þetta eitthvað og þaggar niður í nuðandi röddum ;) *hehe*

kveðja, frá Elvari Jólastrák

þriðjudagur, 11. desember 2007

RISAsmár

Já á Öldugötunni búa stoltustu foreldrar allra tíma! Vorum að koma úr 6 vikna skoðun og haldiði að sá "stutti" sé ekki orðinn 59,5cm og 4800gr eins og hálfs mánaðar gamall!
annars eru pælingar á lofti hvort Elvar sé strax farinn að hafa áhyggjur af of mikilli þyngd því að í morgun ákvað hann að losa sig við hvorki meira né minna en 4 skítableyjur og svo eina til hjá doksa! með öðrum orðum, 5 kúkableyjur á hálfum sólarhring. Svo til að toppa þetta þá eftir að hafa hagað sér eins og engill hjá barnalækninum, án þess að kvarta eða gretta sig þrátt fyrir klíp og tog hér og þar, ákvað hann að pissa yfir mömmu sína alla þegar hún var að klæða pjakkinn aftur í.

Já skítastaðallinn hækkar ansi mikið hjá fólki sem verður foreldrar, fjölskyldan sem sagt lét það ekki á sig fá og strollaði bara í bæinn vel pissubleytt og sátt með glæsilega dóma í 6 vikna skoðun.

Jæja þá er Elvar farinn að sjúga loftið og smjatta á útigallanum sínum svo að það er víst best að fara að rífa hann úr þessu öllu saman og skella honum á brjóstið :)

föstudagur, 7. desember 2007

Vá hvað tíminn líður

Snáðinn verður 6 vikna á þriðjudaginn og foreldrarnir fengu að fara út fyrstu kvöldstundina í gær. mamman átti afmæli og amma Inga fleygði okkur út að borða og sagði okkur að koma heim í fyrsta lagi kl 23:00 svo að Foreldrarnir röltu út í barnalausa kvöldstund á Silfur þar sem þau gúffuðu í sig kræsingunum og nutu góðs vínsopa með. þrátt fyrir að reyna eftir fremsta megni að "gleyma" því að heima biði fallegasta barn veraldar tókst þeim bara að vera úti til 22:00 :/ þá þoldu þau ekki meira og skunduðu heim.
Þetta var yndisleg kvöldstund og þrátt fyrir að hafa notið beggja vínglasanna út í ystu æsar þá verður þetta varla endurtekið á næstunni :) söknuðurinn var bara of mikill ;)

annars er Elvar allur að koma til, farinn að sofa næstum á eðlilegum tíma og sefur alveg til 10 á morgnanna (auðvitað fyrir utan drykkju á 2 tíma fresti). Honum liggur enn jafn mikið á að verða stór og við hlökkum ekkert smá til að fara í 6 vikna skoðun til að vita hversu RISAstór hann er orðinn :D

kveðja frá fjölskyldunni á Öldugötu

fimmtudagur, 29. nóvember 2007

Þetta blogg er tileinkað Maríönnu og Apla

Vá! Takk!! í gær kom Maríanna í heimsókn og þar sem að hún og Atli eiga orðið svo fullorðna dóttur þá áttu þau alls kyns barnadót sem þau geta ekki notað lengur og voru að taka til í geymslunni. Meðal þessa dóts var órói sem hengist fyrir ofan rúmið með fjórum litlum trúðum og spiladós sem spilar sæta vöggubíu. Í dag ákváðum við foreldrarnir að prufa að taka alhreingerningu á klósettið svo lengi sem litli svæfi (bjuggumst við mesta lagi klukkutíma frið) en nei nei, Elvar er búinn að liggja í rólegheitum án þess að tísta í rúma 3 tíma og liggur þar enn! Sefur smá lúr, vaknar svo og skoðar YFIR SIG HEILLAÐUR þessa skemmtilega litríku trúða og sofnar svo aftur...

Hehe don't get us wrong, við elllschkum að dúllast með Elvar okkar en VÁ hvað það er gott að geta einbeitt sér að húsverkum og öðru án þess að þurfa alltaf að halda á eða dúllast eitthvað í honum.

Elvar Ægir þakkar KÆRLEGA fyrir mest spennandi áttunda undur veraldar :)

miðvikudagur, 28. nóvember 2007

Skírnir og Gerður

Já við fjölskyldan á Öldugötu getum vart þakkað jurta apótekinu á Laugavegi nóg! Frá því að litli prinsinn varð tveggja vikna hefur hann verið með svaka magakveisu og sama hvað mamman tók úr fæðinu, pabbinn reyndi að ropa og mikið af miniform dropum voru gefnir þá gekk ekkert. 7-8klst á dag fóru í það að sá stutti argaði af sársauka á meðan foreldrarnir gengu um gólf með sting í hjartanu af vorkunn að reyna að róa litla.
Fyrir nokkrum dögum var okkur svo bent á að fara í jurta apótekið á Laugavegi og fá þar dropa við magakveisu svo að með von í hjarta þrammaði litla fjölskyldan beinustu leið þangað. Þar fengum við dropa sem heita Skírnir (Fenill, kamila og piparmynta) og mömmunni var gert að drekka te (Gerður) þrisvar á dag með sömu innihaldslýsingu svo að síðastliðna daga hafa mæðginin skipst á að kúgast yfir þessu sulli en með snilldar niðurstöðu.
í þrjá daga hefur elsku elsku drengurinn okkar bara vælt í mesta lagi tvo tíma og þá alls ekki af sama ákafa eða sársauka heldur meira af pirringi yfir smávægilegum óþægindum.
Svo að allt er á uppleið þessa dagana, jólaskapið svona hægt og rólega að ná bólfestu og við farin að rölta upp og niður Laugaveginn með kaffi í annari og vagninn í hinni að skimast um eftir mögulegum jólagjöfum.
verður lífið mikið betra? :)

miðvikudagur, 21. nóvember 2007

Magakveisus el Öskrus

Jæja þá er það orðið offissíalt, Elvar okkar er með magakveisu!
þannig að við fáum að vera í hópi þeirra 10-20% heppnu foreldra með argandi barn að meðaltali næstu 3 mánuðina :)
Hann er semsagt búinn að vera að drepast svona líka í maganum síðastliðna viku svo að í gær fengum við tíma hjá barnalækni bara svona í tjekk hvort það væri nokkuð alvarlegt að. Hann skoðaði kútinn í bak og fyrir, spurðist fyrir um einkenni, rétti okkur strákinn og sagði að þrátt fyrir að vera hinn mesti myndar drengur þá væri hann klassískt tilfelli um magakveisu og það eina sem við foreldrarnir gætum gert væri að vinna vel saman til að halda geðheilsunni.
Það er nefnilega mesta furða hvað maður er þolinmóður þó barnið gráti í 7klukkutíma... einfaldlega því að hina 17klukkutímana þá er hann svo mikill engill og það er svo gott að knúsa hann og kyssa hann og og og... ÆJ hann er bara svo SÆTUR!

þannig að ömmur og afar, frændur og frænkur, ef ykkur langar í eitt stykki organdi barn í svona klukkutíma eða svo, endilega verið í bandi og við foreldrarnir förum og fáum okkur ís :D

laugardagur, 17. nóvember 2007

KALT

BRRRRR... við fjölskyldan ætluðum út að labba í dag, klæddum okkur í kuldagallann og ullarnærfötin (reyndar fór bara Elvar í nærfötin) skelltum á okkur húfum, vettlingum og öllu tilheyrandi og dúðuðum vagninn í flísteppum. Svo var arkað út í góðri von að komast jafnvel í heimsókn til ömmu Ingu... en komumst svo að því að 2gráður og 12 vindstig eru ekki við hæfi 2 vikna gamalla barna :/ svo að það var tekin skörp U-beygja varla komin út götuna og skellt sér aftur inn í hlýjuna.
æj það er fínt að hanga inni á svona dögum.

annars er kútur bara að dafna eins og best verður á kosið, stækkar og stækka og verður með þessu áframhaldi búin að ná mömmu sinni og pabba fyrir fyrsta afmælisdaginn. Reyndar virðist græðgin eitthvað vera að bögga mann þessa dagana þar sem að hann gleypir svo mikið loft með matnum að síðastliðna tvo sólarhringa hefur fjölskyldan litla ekkert sofið sökum magaverkja hjá elsku kallinum.

jæja nú er kominn tími til að mamma fái að borða eitthvað :)
bless

sunnudagur, 11. nóvember 2007

Skírdagurinn

Þá er litli strákurinn okkar skírður... Elvar Ægir Bjarkason! Fallegt nafn fyrir fallegan strák.

Planið var nú reyndar ekkert að vera að skíra fyrr en kannski um jólin en svo komumst við að því á föstudaginn að föðurfjölskyldan gæti ekki komið til landsins þá svo að allt var sett í flug gír, hringt í prestinn, hringt í alla fjölskylduna, matur ákveðinn, kjóllinn keyptur og allt bara á innan við sólarhring :) geri aðrir betur ;)

Athöfnin var yndisleg, kósí bara heima með nánustu fjölskyldu og Ásu prest sem að gifti mömmuna og pabbann fyrir fjórum mánuðum síðan. Elvar lét varla heyra í sér, saug bara puttann á pabba sínum og brosti allan tímann, var meira að segja svo sætur að Ása féll alveg fyrir honum og knúsaði hann og kjassaði þó athöfnin væri enn í gangi :D

Yndislegur dagur bara frá A-Ö

fimmtudagur, 8. nóvember 2007

OFURBARNIÐ

já barnið okkar er ofurbarn! eins og áður sagði þá telst eðlilegt (sérstaklega með frumbyrjur) að barn nái upprunalegri fæðingarþyngd tveggja vikna gamalt og svo eftir það þá þyngist það um 100-200gr á viku. Stráknum okkar virðist hins vegar vera svo mikið í mun að stækka að hann er búinn að þyngjast um 200gr síðastliðna 4 daga og 330gr frá fæðingarþyngd - lengjast um sentimeter og höfuðið búið að stækka um hálfan... og má ég minna á að hann er bara 9 daga gamall!
Ljósan kom í dag og mældi hann og sagðist varla þekkja annað eins, hann væri bara eins og hann væri að verða 3 vikna! OHH við erum svo stoltir foreldrar!

svo koma amma og afi frá Boston á morgun, pabbinn alveg getur ekki beðið eftir að fá að monta sig loksins!

Annars gengur enn allt bara eins og í draum, mamman og pabbinn alveg farin að geta sofið næstum straight alla nóttina (fyrir utan auðvitað þegar drengurinn verður svangur) svo að maður er bara fullfrískur þessa dagana :D
jæja verið að öskra á mat svo að ég verð að þjóta og opna búlluna...

þriðjudagur, 6. nóvember 2007

Jæja, þá er strákurinn okkar orðinn átta daga gamall og stækkar með hverri sekúndunni! Við fórum sem sagt með hann í 5 daga skoðun í gær, og hann er bara algjört undrabarn... Eins heilbrigður og hægt er að vera, og búinn að þyngjast!!! Það er víst eðlilegt að börn léttist eitthvað frá fæðingarþyngd, en hann er semsagt búinn að þyngja sig á við tveggja vikna barn... sumir eru greinilega að flýta sér að fullorðnast. Annars virðumst við vera að koma smá reglu á svefninn, og hann er farinn að sofa meira á nóttunni... loksins!!! Við erum búin að kíkja aðeins út í heimsóknir, fórum til langömmu Sigrúnar og Langömmu Ásu núna á síðustu dögum, ofsalega gaman að komast aðeins út og sýna sýna stráksa... Annars er nú eiginlega kominn tími á að fjölskyldan fari nú að leggja sig...
kveðja, Bjarki Pabbi.

sunnudagur, 4. nóvember 2007

5 dagar í þessari veröld

Jæja þá er prinsinn okkar búinn að vera til í 5 daga og gerir foreldra sína háðari sér með hverri mínútunni. hann er búinn að vera algjör draumur strákurinn og fyrir utan 3 nætur með magaverki þá varla heyrist í honum nema þá til að hlæja til mömmu og pabba :D
merkilegt annars hvað maður getur orðið ástfanginn af veru sem er búin að vera í lífi manns svona stutt, mamman þurfti að fara og kaupa gjafahaldara alla leið upp í smára í gær og tók 45 mínútur í það, þegar heim kom stóðu feðgarnir i glugganum að bíða og þvílík ógurleg gleði sem rauk yfir mig hef ég aldrei upplifað, náði varla að ganga frá bílnum þvílík var geðshræringin! aldrei hefði ég trúað því að maður gæti saknað lítillar manneskju svona mikið eftir svo stuttan tíma :)
Pabbinn heldur áfram að vinna verðlaunin "pabbi ársins" og dekrar við litla kút við hvaða tækifæri, gott dæmi um það er að á þriðja degi fór mamman eitthvað að velta fyrir sér hvort það væri eðlilegt að barnið væri að verða þriggja daga gamalt og hún hefði ekki enn fengið að skipta á kúkableyju... hehe "æj sorry þetta er bara svo gaman" var svarið sem þessi draumakarl kom með.
Eitt er víst að betri samvinnu væri ekki hægt að biðja um.
það fer að styttast í enn fleiri myndir og þó að ég hafi sagst ekki ætla að verða algjör brjálæðingur á myndavélinni þar sem hver einasti andardráttur er myndaður með tilheyrandi "aaaaw" og "æææææj" hljóðum þá þarf ég víst að skjóta mig í fótinn þar... æj hvað er þetta, maður má þetta svona fyrst um sinn ;)

drengurinn farinn að sofa og kominn tími til að mamma og pabbi geri slíkt hið sama.
góða nótt

þriðjudagur, 30. október 2007

Velkominn í heiminn!!!

Já þessi elska er heldur betur stríðinn!
ekki nóg með það að láta bíða eftir sér í fimm AUKA daga þá ákvað hann líka að rugla heldur betur í hríðunum og leyfði þeim bara ekki að verða reglulegum heldur var allan tímann 19mín á milli, 11 mín á milli, 2 mín á milli, 6 mín á milli, 25 mín á milli og svo framvegis þar til að við gáfumst upp og fórum upp á hreiður um 7 leytið í gærkvöldi bara til að svona tékka (bjuggumst bara við því að vera send heim eftir smá tékk) en heldur betur annað kom á daginn.
Við vorum bara lögð inn og ég var komin með 2-3 í útvíkkun, ekkert gekk almennilega og hríðarnar létu ekki einu sinni sjá sig í mónitornum svo að við fórum í sturtu og svo bað til að reyna að lina sársaukan. um 10 leytið fannst okkur nú vera nóg komið og ljósan ákvað að tékka útvíkkun og var hún þá bara komin í 4!!! "argh er ekkert að fara að gerast næstu vikuna" var það eina sem komst inn í hausinn á mér ... eeen eins og sönnum stríðnispúka sæmir skellti stráksi á mig EINNI TUTTUGU MÍNÚTNA HRÍÐ sem að endaði á því að ég var farin að ranghvolfa augunum og argaði nú á klappstýruna mína (sem btw stóð sig eins og HETJA allan tímann og las hugsanir eins og honum væri borgað fyrir það) að nú skildi ég bara hætta þessum helv... hetjuskap og vildi fá mænudeyfingu svo að ljósan ákvað að skoða og nei nei mín bara komin í 10 í útvíkkun og rembingur bara byrjaður!!! svo að mér var skellt upp úr og í rúmið að byrja að fæða!
EN enn og aftur, þá var hann sko ekki hættur að atast í mömmu sinni og þrátt fyrir klukkutíma rembing þá kom ekkert - allt stopp - svo að þá þurfti að rembast við að finna æð til að gefa mér dripp til að framkalla lengri hríðar (sem að loksins tókst í ÞRIÐJU tilraun) og ef ég á að segja eins og er, er ég ekki alveg viss hvað gerðist næst en allavega allt í einu var Bjarki farinn að ýta á mig súrefni og stofan fylltist af fólki og ég heyrði eitthvað gargað um fósturþreytu, grænt legvatn og sogklukku... ohh men! ekki ætlar þetta að ganga neitt allt of vel en þökk sé frábærasta eiginmanni í heimi sem að peppaði mig áfram eins og lífið liggi við og snilldar fæðingarlækninum henni Ebbu sem að breyttist í lautinant og argaði á mig að nú skildi ég sko gera eins og hún segði til að bjarga litla barninu okkar "yess sirr" var það eina sem komst að hjá mér og nú skildi ég sko rembast fyrir litla prinsinn okkar!
Þá BROTNAÐI sogklukkan og þrír hlupu út að leyta að nýrri og allt byrjaði aftur, en með snilldar samvinnu þá tókst þetta á endanum og kl 00:07, 30 október var herra Conehead dreginn út í lífið og skellt beint á magann á mömmu sinni þar sem að sogað var upp úr honum og hann hreinsaður aðeins. Svo fékk stoltasti pabbi í heimi að klára að klippa á naflastrenginn með vægast sagt skjálfandi höndum og bitlausum skærum :) Snáðinn var svo 15 merkur og 53cm.
þannig að ég er ekkert smá montin mamma að hafa tekist að gera þetta verkjalyfjalaust bara :D já já má maður vera montinn ;)

HEHE eftir á gekk allt eins og í sögu, hann fór næstum beint á brjóst og hefur varla vælt síðan.
Nú erum við fjölskyldan komin heim í fyrsta sinn þrjú og ætlum bara að njóta komandi daga, góða nótt