sá eldri nálgast óðfluga 2 og hálfs árs og sá yngri 9 mánaða!
úff þetta líður.
allt gengur ótrúlega vel, Elvar gæti ekki verið betri stóri bróðir. Lemur aldrei, brosir alltaf til hans, heldur heilu skemmtiatriðin fyrir litla bró og kippir sér aldrei upp við það þegar óvitinn ræðst á úthugsaða uppröðun leikfanganna hans heldur útskýrir rólega (alveg ótrúlega rólega) fyrir barninu að þetta sé ekki sniðugt!
algengar setningar á okkar heimili þessa dagana:
Daníel: BAAAAH
Elvar: neeeei ekki baaah, þetta er skófla
Daníel: MAMAMAMAAMMM
Elvar: já Daníel, þetta ER mamma
Daníel: *öskur*
Elvar: nei Daníel/nei litli bróðir þetta er ekki sniiiiðugt
Daníel: *grætur*
Elvar: mamma! Daníel er að gráta! - svona svona ekki gráta ekki gráta *sönglað*
Daníel: *orgar óþolinmóður eftir þjónustu*
Elvar: NEI Daníel, nú þarft þú bara að BÍÐA! mamma er að AÐSTOÐA mig! (já hann notar orðið aðstoða! mamman sagði það einhverntíma óvart í stað 'hjálpa' og nú er það bara notað)
sem sagt, samvistin gengur ótrúlega vel, eiginlega framar öllum vonum.
hins vegar erum við alveg búin að sjá að persónuleikar strákanna hefðu ekki getað skiptst betur því Elvar er þessi rólegi, þolinmóði hugsuður (góður eldri bróðir og leiðbeinandi) á meðan Daníel er í tveim orðum hávær og ÁKVEÐINN! ...
hehe bara gaman að þessu :)
annars eru nýjustu fréttir af þeim tveim eflaust þær að Elvar lærði að hjóla á þríhjólinu sínu fyrir um mánuði og brunar nú um allan bæ á hjólinu auk þess sem að hann uppgötvaði rúllandi ERRRRR fyrir svona tveim vikum síðan svo allar setningar einkennast af miklum áherslum á þennan skemmtilega nýja samhljóða :D
og Daníel er loksins byrjaður að hugsa um að skríða...nei hann er ekki byrjaður, bara farin að hugsa um það ;)
svo er mamman loksins aftur byrjuð að setja reglulega myndir inn á flickr síðuna þeirra svo endilega tékkið á því, æðislegt að sjá hvað þeir eru rosalega ólíkir en samt svo sterkur bræðrasvipur með þeim :)
þar til næst
sunnudagur, 28. mars 2010
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 kveðjur:
Amiable dispatch and this enter helped me alot in my college assignement. Thanks you on your information.
Sendu inn athugasemd