mánudagur, 9. ágúst 2010

Stóru strákarnir

Já það verður ekki annað sagt en að þeir séu að verða svolítið stórir...kannski bara aðeins of fljótt ;)

Daníel byrjaði hjá dagforeldrunum þeim Maggý og Munda rétt fyrir sumarfríið í leikskólanum svo það hefði ekki getað passað betur. Hann alveg hreint elskar að fara þangað og tekur þeim opnum örmum þegar við mætum á morgnana og unir sér vel allan daginn. Þar að auki á hann geggjaðan félaga þarna, hann Lúkas Loga, sem leikur með honum mest allan daginn og saman berjast þeir hetjulega gegn ofurknúsárásum frá Dimmalimm.

Elvar fékk heilan mánuð af óskiptri athygli mömmu og pabba og líkaði vel en á móti kom að hann var eiginlega bara hundfúll þegar við ösnuðumst til að sækja Daníel og skildi eiginlega bara ekki af hverju við gátum ekki bara geymt hann þar.
þar af leiðandi er smá afbrýðissemi að blossa upp en það er aldrei alvarlega en svo að hann ýtir aðeins við honum af pirringi þegar litla dýrið rústar öllu sem hann er að vinna að :)

Nú er Elvar aftur byrjaður á leikskólanum og mætti halda að við foreldrarnir hefðum staðið okkur svona svakalega illa í þessu fríi hans því hann liggur við hljóp inn á leikskólann fyrsta daginn og hafði varla tíma til að kveðja svo glaður var hann að vera kominn aftur til Önnu og Tinu :)

Annars fékk Elvar tvíhjól á hjálpardekkjum í sumargjöf (eftir að hafa tilkynnt okkur að hann vildi nú fara að læra á HJÓL) og hefur þrumað um allan bæ á því síðan, tók hann um það bil 0,1 sek að læra á það en við eigum núna fullt í fangi með að halda í við hann í bæjarferðum okkar :)
Daníel er ekkert ólíkur bróður sínum í labb málum en þó hann hafi vissulega styrkinn og jafnvægið til að fara að labba þá er hann ekkert á því að sleppa sér... nema mamma og pabbi plati hann til þess. Reyndar er 13 mánaða "afmælið" liðið en ekkert bólar á þorinu ;)

Elvar er auðsjáanlega eitthvað undrabarn þegar kemur að tali en hann hefur okkur foreldrana auðveldlega undir í rökræðum og er það eiginlega svo komið að hann kann liggur við öll orð í orðabókinni. Hann fór í 2og1/2 árs skoðun um daginn og við foreldrarnir munum lifa á þeirri skoðun þar til hann fermist svo mikið var stoltið og montið.
Hann sem sagt fór í hana tæplega tveggja og hálfs og fannst hjúkkunni það ekki alveg nógu sniðugt þar sem þetta væri svolítið erfitt próf og koma börnin víst vanalega vel eftir að þau verða 2og1/2. En við ákváðum að prufa bara og hann kæmi þá bara aftur ef illa gengi.
Hjúkkan byrjaði að spurja hann ýmissa spurning og í stað þess að bara svara því þá kom hann með ýmis rök fyrir því af hverju svarið væri svona, til dæmis þegar hann var spurður hvað hann héti þá kom sko Elvar Ægir BJARKASON því að Bjarki væri pabbi hans og hann héti það...hjúkkan tilkynnti okkur það að þau ættu nú ekki að kunna þetta fyrr en svona 4 ára. Svo var komið að líkamlegri færni og rúllaði hann því upp svo rúmlega að hann var farinn að sýna henni hluti sem eiga víst að vera athugaðir í 4og1/2 árs skoðuninni.
þarna var hjúkkan komin með kjálkann á gólfið en Elvar lét ekki staðar numið og var farinn að kenna henni hvernig ætti að gera við borðið ef ske kynni að það myndi "bila".
Hann sem sagt labbaði út með 100 stig af 100 mögulegum og hjúkkan sagðist aldrei hafa séð annað eins!!! :D mamman og pabbinn bara PÍÍÍNU montin :D

Daníel hefur auðsjáanlega erft "OfurSætaBrosiðSemKemurMérÚrÖllumVandræðum" frá mömmu sinni og notar það óspart ef hann gerir eitthvað sem ekki má. Meira að segja áður en hann gerir hlutinn (til dæmis að lemja í tölvuna) þá leggur hann hendina á tölvuna ofurlétt, horfir svo á okkur með glotti, reigir svo aftur hausinn og smellir upp þessu líka brjálæðislega krúttlega "SjáðuHvaðÉgErSætur" brosi og *BAMM* lemur tölvuna af öllu afli, svo þegar hann er skammaður dettur brosið af í kvartsekúntu en ríkur upp aftur sterkara en nokkru sinni fyrr til að bræða mann úr reiðinni.
HEHE hann kann þetta.
Svo á hann ægilega bágt með það að geta ekki allt sem stóri bróðir getur en reynir af fullum mætti með tilheyrandi kúlum og marblettum...honum til lítillar skemmtunnar.

Já það verður seint sagt að lífið hér á Öldugötunni sé ekki skemmtilegt, enda hvað annað hægt þegar maður á svona brálæðislega skemmtilega stráka.
bless í bili og eins og alltaf lofar maður að koma bráðum með fleiri spennandi fréttir.

0 kveðjur: